Frístund.is: Nýr sameiginlegur frístundavefur
Börn og forráðamenn þeirra leita að frístundastarfi eftir áhugasviði og hentugleika, ekki stjórnsýslumörkum sveitarfélaga. Upplýsingar um námskeið og þjónustuaðila þurfa að endurspegla þann veruleika.
Í stuttu máli
Áskorunin: Upplýsingar um frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu voru dreifðar og óaðgengilegar.
Lausnin: Sameiginlegt vefsvæði með yfirliti yfir frístundastarf í Reykjavík, Mosfellsbæ, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ.
Árangurinn: Betra aðgengi að fjölbreyttara frístundastarfi, óháð búsetu.
Fyrir hver: Barnafjölskyldur og skipuleggjendur frístundastarfs á höfuðborgarsvæðinu
Staða: Komið í notkun
Áskorunin
Aðgengi stjórnar þátttöku
Frístundir gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna, ungmenna og fjölskyldna. Betra aðgengi að upplýsingum um framboð eykur þátttöku í frístundastarfi og stuðlar að því að fjölbreyttari hópur nýti þau tækifæri sem eru í boði.
Dreifðar upplýsingar og engin heildarmynd
Áður voru upplýsingar um frístundastarf, námskeið og þjónustu fyrir börn og fjölskyldur dreifðar á marga ólíka vefi og kerfi. Forráðamenn þurftu að vita hvaða sveitarfélag eða þjónustuaðili stóð að hverju námskeiði og leita á mörgum stöðum til að fá heildarmynd af því sem var í boði.
Fjölskyldur nýta frístundaframboð þvert á sveitarfélagamörk
Gögn sýna að fjölskyldur velja frístundir út frá áhuga, staðsetningu og hentugleika en ekki því sveitarfélagi sem þjónustan tilheyrir. Það vantaði því lausn sem gerði fjölskyldum kleift að finna allt framboð á einum stað.
Úreltur vefur
Gamli vefurinn, sem hýsti hluta frístundaframboðs borgarinnar, var byggður á eldri tæknilausn sem uppfyllti ekki lengur kröfur um nútímalega, notendamiðaða þjónustu. Það var því kominn tími á endurnýjun. Nýr vefur opnaði í apríl 2025 með öllu framboði í Reykjavík og í kjölfarið haldið áfram samtali við notendur um framþróun lausnarinnar.
Saga inni í sögu: Samstarf sveitarfélaga
- Börn sækja íþróttir, tónlistarnám og annað frístundastarf yfir sveitarfélagamörk og var því mikilvægt að þróa lausn sem endurspeglaði þann veruleika.
- Með það að leiðarljósi hafði Reykjavíkurborg samband við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu í lok árs 2025 til að kanna áhuga á samvinnu. Viðtökurnar voru mjög jákvæðar og fljótlega varð til samstarf milli Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar um þróun og aðlögun til að halda úti sameiginlegu vefsvæði.
- Samstarfið byggist á þeirri sameiginlegu sýn sveitarfélaganna að auðvelda íbúum að finna frístundaframboð á einum stað, óháð sveitarfélagamörkum. Sveitarfélögin hafa unnið saman að mótun lausnarinnar, miðlun framboðs og þróun vefsins með reglulegu samráði og sameiginlegri ákvörðunartöku.
- Frístund.is markaði mikilvægt skref í auknu samstarfi sveitarfélaga um stafræna þjónustu við íbúa.
Lausnin: Nýr vefur Frístund.is
Sameiginleg þjónustugátt fyrir höfuðborgarsvæðið
Frístund.is sameinar frístundaframboð sveitarfélaganna á einum stað og gerir notendum kleift að leita að námskeiðum og öðru frístundastarfi óháð því hver er ábyrgðaraðili eða í hvaða sveitarfélagi það er í boði.
Frístund.is er ekki skráningarkerfi heldur sameiginleg þjónustugátt sem safnar saman framboði úr ólíkum kerfum og birtir það á einum stað.
Framboð óháð skráningarkerfi
Lausnin tengist Abler, Völu og Hvirfli, viðburðakerfi Reykjavíkurborgar, fyrir þá sem ekki hafa nein skráningarkerfi og er hönnuð svo að hægt sé að bæta við tengingum við önnur skráningarkerfi í samstarfi við viðkomandi þjónustuaðila.
Sveitarfélög, félagasamtök og aðrir frístundaaðilar geta því haldið áfram að nota þau kerfi sem henta þeirra starfsemi best á meðan íbúarnir fá samræmt yfirlit yfir allt frístundaframboð.
Þessi nálgun einfaldar skipuleggjendum þátttöku, styður við áframhaldandi samstarf og gerir lausnina skalanlega til framtíðar.