Sorphirða
Sorphirða Reykjavíkurborgar hirðir úrgang frá heimilum borgarinnar. Skylda er að vera með ílát fyrir fjóra flokka við öll heimili. Íbúar geta fjölgað eða fækkað tunnum við heimili eftir þörfum. Þegar við flokkum förum við betur með verðmæti og höfum jákvæð áhrif á umhverfið.
Tilkynna um tunnur sem hafa skemmst eða orðið fyrir hnjaski vegna eðlilegrar notkunar, svo sem við losun.
Hvað viltu skoða?
- Sorphirðudagatal Hvenær er sorpið sótt heima hjá þér?
- Spurt og svarað um sorphirðu Algengar spurningar frá íbúum.
- Fékkstu miða á tunnuna þína? Hvers vegna fékkstu miða og hvernig áttu að bregðast við?
- Gjaldskrá sorphirðu Hvað kostar þetta allt?
- Snjöll sorphirða Sorptunnur í eigu borgarinnar merktar með örflögum.
- Fjölbýlishús Hvernig virkar sorphirða í fjölbýlishúsum?
- Viðhald og pöntun sorptunna Hvað þarftu að vita um viðhald og pöntun á nýjum tunnum
- Djúpgámar Hvað eru djúpgámar og hvaða reglur gilda um uppsetningu þeirra?
Samræmt flokkunarkerfi
Notum rétta tunnu
Það er skylda að flokka í Reykjavík. Við notum bláa tunnu fyrir pappír, græna tunnu fyrir plast, brúna tunnu fyrir matarleifar og gráa tunnu fyrir blandaðan úrgang.
Fjölbýlishús
Breytingar á fjölda og tegundum tunna í fjölbýlishúsum hafa áhrif á gjöld allra í húsinu. Þess vegna þurfa íbúar fjölbýlishúsa að eiga samráð um slíkar breytingar.
Viðhald og pöntun sorptunna
Ef tunna við heimilið þitt hefur orðið fyrir hnjaski við losun eða aðra eðlilega notkun þarf að tilkynna skemmdirnar til Sorphirðu Reykjavíkur.
Einnig er hægt að panta eða skila tunnum ef aðstæður eða þarfir breytast.
Gjaldskrá
Það er ódýrara að henda minna og flokka meira! Verði breytingar á fjölda sorpíláta eða tíðni losana miðast breytingar á gjöldum við þá viku sem óskað er eftir breytingunni.
Hafðu samband
Ábendingar er varða þjónustu Sorphirðu Reykjavíkur má senda í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar
Sími þjónustuvers Reykjavíkurborgar er 411 1111
Netfang: upplysingar@reykjavik.is