Almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar
Borgarráð samþykkti þann 28. apríl 2022 tillögu stýrihóps um Almenna eigandastefnu Reykjavíkurborgar gagnvart B-hlutafélögum (AER) sem tekur mið af leiðbeiningum OECD um góða stjórnarhætti í opinberri eigu frá 2015.
Nánar
Neð eigandastefnunni var mörkuð skýr stefna um eignarhald Reykjavíkurborgar í einkaréttarlegum fyrirtækjum og byggðasamlögum ásamt því að kveða á um skipulag og stjórnarhætti Reykjavíkurborgar vegna meðferðar eigandavalds, ásamt þeim kröfum sem gerðar eru til skipulags og stjórnarhátta þeirra fyrirtækja sem eigandastefnan nær til.
AER rammar inn með skýrum hætti markmið og framkvæmd eigandavaldsins. Helstu breytingar sem stefnan markar eru m.a. að Reykjavíkurborg er formlega skilgreind sem virkur eigandi og hlutverk, umboð og ábyrgð eigandafyrirsvars er skilgreint og afmarkað gagnvart borgarráði og borgarstjórn, þar á meðal valdheimildir og mörk þeirra og upplýsingagjöf. Eigandafyrirsvar er hugtak sem skilgreinir hvaða stjórnareiningar innan Reykjavíkurborgar fara hverju sinni með réttindi og skyldur Reykjavíkurborgar sem eiganda og með hvaða hætti.
Borgarstjóri er handhafi eigandafyrirsvars en framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar er í höndum borgarritara, að frátalinni fjárhagslegri framkvæmd og eftirfylgni sem er í höndum sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs og innri endurskoðunarþjónustu sem er í höndum Innri endurskoðunar og ráðgjafar og endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Gerð er krafa um að skipulag og stjórnarhættir fyrirtækjanna séu í samræmi við rekstrarform sem um þau gilda og endurspegli lög og góða stjórnarhætti og endurskoðar Eigandafyrirsvar reglulega rekstrarform fyrirtækjanna.
Samkvæmt 2. gr. í AER gildir eignarhald borgarinnar um þau fyrirtæki sem borgin á a.m.k. 50% eignarhlut í (félög innan samstæðu Reykjavíkurborgar), sem og þau fyrirtæki þar sem bókfært virði eignarhlutar nemur kr. 100.000.000 eða meira. Ákvæði 1.-4. kafla og kafla 5.1.-5.3. gilda þó um alla eignarhluti Reykjavíkur í fyrirtækjum og stofnframlög borgarinnar. Með hugtakinu „fyrirtæki“ er átt við einkaréttarleg fyrirtæki s.s. hlutafélög, sameignarfélög og samlagsfélög, sem og byggðasamlög skv. 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 (SSL). Stefnan tekur ennfremur til dótturfyrirtækja þeirra fyrirtækja sem stefnan tekur til, eftir því sem nánar greinir í stefnunni.
Almenn eigandastefna Reykjavíkurborgar
Greinargerðir eigandafyrirsvars um Almenna eigendastefnu Reykjavíkurborgar:
Skýrsla 2022-2026 – Innleiðing og eftirfylgni Almennrar eigandastefnu Reykjavíkurborgar