Borgarráð - Borgarráð fimmtudaginn 11. júní 2026 nr. 5826

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 11. júní, var haldinn 5826. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Hulda Hólmkelsdóttir, Theódór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, um kosningu sjö borgarráðsfulltrúa til eins árs og sjö til vara á fundi borgarstjórnar þann 2. júní sl. Einar Þorsteinsson var kjörinn formaður. Einnig var lögð fram tilkynning Vinstrisins um að Sanna Magdalena Mörtudóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði og tilkynning Sósíalistaflokks Íslands um að Silja Sóley Birgisdóttir verði áheyrnarfulltrúi flokksins í borgarráði.

    Lagt er til að Björg Magnúsdóttir verði varaformaður borgarráðs.
    Samþykkt. MSS26060007

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, um ákvörðun borgarstjórnar frá 2. júní 2026 um að leggja niður stafrænt ráð Reykjavíkur og færa verkefni ráðsins til borgarráðs. MSS26060013

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki fundadagatal ráðsins fyrir júní-desember 2026, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS26060065

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnara nr. 28 við Barónsstíg, Vörðuskóla, ásamt fylgiskjölum,
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK26040175

    Brynjar Þór Jónasson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á mikilvægi þess að samgöngu- og öryggisþættir skipulagsins verði rýndir vandlega svo börn eigi örugga gönguleið frá skólabíl að skólabyggingu. Fulltrúarnir benda jafnframt á að leikskólinn Vörðuborg mun ekki víkja af lóðinni án þess að annað leikskólahúsnæði komi til sem rúmað getur þau börn sem annars hefðu sótt leikskólann Vörðuborg.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    75 börn eru í leikskólanum Vörðuborg sem einungis hefur starfað í tæp tvö ár. Hér leggur meirihluti borgarráðs fram tillögu að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir að leikskólinn fari af lóðinni án þess að honum hafi verið fundinn annar staður, eða pláss fyrir börnin í öðrum leikskólum. Fulltrúar Samfylkingar leggja á það áherslu að fækka ekki leikskólaplássum, því er mikilvægt að samhliða deiliskipulagsvinnu verði leikskólanum fundinn annar staður og börnunum tryggð leikskólavist.

  5. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26050049

  6. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26060033
     

  7. Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók. MSS26030016

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela borgarritara í samvinnu við sviðsstjóra að rýna stöðu starfs- og stýrihópa sem og aðra vinnuhópa sem stofnaðir hafa verið með erindisbréfi hjá Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu 2022-2026. Umboð stýrihópa féll niður í lok síðasta kjörtímabils. Metið verði hvaða starfs- og stýrihópa ætti að leggja alveg niður, breyta og/eða endurnýja erindisbréf eða hvort þau gildi áfram óbreytt.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26060047

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar benda á að á síðasta kjörtímabili hafi heildarfjöldi starfs- og stýrihópa borgarinnar verið hátt í 200. Aðeins rúmur helmingur þeirra hafi skilað niðurstöðu við lok kjörtímabils. Telja fulltrúarnir nauðsynlegt endurskoða stöðu starfandi starfs- og stýrihópa við upphaf kjörtímabils. Fulltrúarnir leggja jafnframt áherslu á að slíkir hópar séu ekki fleiri en nauðsyn krefur, þeir hafi skýru hlutverki að gegna og beri að skila niðurstöðu innan skilgreinds tímaramma.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar tillögur starfshóps um risaeðlu um að afþakka gjöf frá samtökunum Leap Lab sem hafði farið þess á leit að gefa Reykjavíkurborg hluta úr beinagrind af risaeðlu.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS22100003

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26060027

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Athygli vekur að fjórir fulltrúar eru fyrir hönd þeirra þriggja flokka sem sitja í meirihlutanum en eingöngu tveir fyrir hönd minnihlutans. Í jafn viðamiklu verkefni og þessu hefði farið betur á því að allir flokkar ættu fulltrúa í stýrihópnum. Hvað varðar fullyrðingar um að kostnaður við miðlæga stjórnsýslu borgarinnar sé hærri en landsmeðaltal og hærri en hjá öðrum sveitarfélögum er rétt að halda því til haga að það er ólíku saman að jafna hvernig sveitarfélög halda utan um reikningsskil sem gerir samanburðinn flóknari. Sem dæmi er stafræn uppbygging síðustu ára gjaldfærð miðlægt í Reykjavík en á síðasta ári nam hún 1,8 milljörðum. Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélagið og höfuðborg landsmanna og sinnir hún mun víðtækari verkefnum og þjónustu en önnur sveitarfélög og þarf að taka tillit til þess í samanburðinum.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, þar sem erindisbréf neyðarstjórnar Reykjavíkur 2026-2030 er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS26060052

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 29. maí 2026, um val á borgarlistamanni Reykjavíkur 2026. Trúnaður gildir um málið fram að útnefningu 17. júní 2026.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR26040006

  13. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra sviðsins verði heimilað að gera þá breytingu á fyrirkomulagi kennslu nemenda sem eru í innlögn á BUGL að í stað þess að hún verði hluti af starfsemi Brúarskóla verði hún hluti af starfsemi Laugalækjarskóla og heyri undir skólastjóra þess skóla, ásamt fylgiskjölum. Breytingin tekur gildi 1. ágúst 2026.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26050011

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra sviðsins verði heimilað að setja viðmið um hámarksfjölda nemenda með lögheimili í Reykjavík sem heimilt er að greiða framlag vegna til sjálfstætt rekinna grunnskóla utan Reykjavíkur skólaárið 2026-2027, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22040100

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að gerðar verði breytingar á reglum Reykjavíkurborgar um leikskólaþjónustu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020037

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð feli sviðum borgarinnar í samstarfi við skrifstofu borgarstjórnar að hefja vinnu við verkefni sem tengjast þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fer fram þann 29. ágúst 2026.
    Samþykkt. MSS26030033

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð vísi því til borgarstjórnar að samþykkja að fela borgarráði að fullnaðarafgreiða erindi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fara fram 29. ágúst nk., þ.m.t. að skipa hverfiskjörstjórnir og undirkjörstjórnir og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið borgarstjórnar vegna framkvæmdar kosninganna.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26030033

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að vísa til afgreiðslu borgarstjórnar að kjörstaðir í Reykjavík við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst nk. verði óbreyttir frá borgarstjórnarstjórnarkosningum 16. maí sl.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26030033

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að vísa til afgreiðslu borgarstjórnar að þóknanir fyrir störf í kjörstjórnum í Reykjavík við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fram fara 29. ágúst nk. verði óbreyttar frá borgarstjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí sl. og verði sem hér segir: Hverfiskjörstjórn: kr. 136.000. Undirkjörstjórn kr. 82.000.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26030033

    Fylgigögn

  20. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 330/2025. MSS24040036

  21. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 340/2025. MSS23110015

  22. Lagt er til að Einar Þorsteinsson taki sæti varamanns í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
    Samþykkt. MSS26050087

  23. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðal- og varafulltrúa Reykjavíkurborgar á landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS26050036

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 19. maí 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 21. maí sl. og færð í trúnaðarbók borgarráðs, ásamt fylgiskjölum, sbr. 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. maí:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Þjóðarhallar ehf. í samræmi við 9. gr. stofnsamþykkta félagsins, þann 3. júní 2026 kl. 15:00 að Suðurlandsbraut 10, 2. hæð. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: 1. Setning aðalfundar. 2. Kosning fundarstjóra og ritara. 3. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 4. Efnahagsreikningur og rekstrareikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar. 5. Ákvörðun hvernig skuli farið með hagnað eða tap. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur út arður og vísar að öðru leyti til ársreiknings varðandi ráðstöfun hagnaðar/taps þannig að tap ársins færist á óráðstafað eigið fé. 6. Tillaga um aukið hlutafé. Sjá tillögu nr. 7 um breytingu á samþykkt félagsins. 7. Tillaga um breytingu á samþykkt félagsins. Stjórnin leggur til eftirfarandi tillögu um breytingu á 3. gr. samþykkta félagsins. Ný 3. gr. verði eftirfarandi: Hlutafé félagsins er að nafnvirði kr. 4.160.000.000 – (4.16 milljarðar króna). Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé, samtals um allt að kr. 15.240.000.000 að nafnvirði og tekur hækkunin mið af framkvæmdakostnaði við byggingu Þjóðarhallar án tillits til verðbóta. Hluthafar hafa forgangsrétt að nýjum hlutum í hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Hlutafé félagsins eftir hækkun verður 19,4 milljarðar króna, verði heimild til hækkunar hlutafjár að fullu nýtt. Stjórn félagsins skal árlega leggja fram ádráttaráætlun hlutafjáraukningar á aðalfundi félagsins fyrir komandi ár. Tillaga um árlega aukningu á hlutafé skal lögð fyrir hluthafafund ár hvert. Framangreind heimild stjórnar Þjóðarhallar ehf. rennur út 31. desember 2030. Heimild þessi skal felld úr samþykktum þegar hún hefur verið að fullu nýtt. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna eða margfeldi þar af. Hlutir skulu hljóða á nafn og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Hlutafé veitir hluthafa full réttindi sem samþykktir þessar og lög um einkahlutafélög mæla fyrir um. Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs Íslands fer með 55% eignarhluta og borgarstjóri f.h. Reykjavíkurborgar fer með 45% eignarhlut og skulu aðilar greiða inn hlutafé í samræmi við eignarhlutfall sitt. Hluthafa er óheimilt að selja, lána, veðsetja, gefa eða framselja á annan hátt hluti sína í félaginu í heild eða að hluta, án skriflegs samþykkis stjórnar félagsins. 8. Kosning stjórnar. 9. Kosning endurskoðanda. Ríkisendurskoðun fer með endurskoðun reikninga félagsins í samræmi við c-lið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. 10. Ákvörðun um laun stjórnar á komandi starfsári. Lagt er til að stjórnarlaun verði 114.000 kr. á mánuði, en stjórnarformaður fái tvöfalda þá fjárhæð. 11. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til að borgarráð samþykki tillögur nr. 4, 5, 6, 7, 9 og 10. Varðandi tillögu undir dagskrárlið nr. 8 um kosningu stjórnar leggur tilnefninganefnd borgarráðs til að fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Þjóðarhallarinnar ehf. verði óbreyttir á þann hátt að Ómar Einarsson og Ólöf Örvarsdóttir verði áfram aðalmenn. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Þjóðarhallar ehf. sem haldinn verður 3. júní 2026. MSS26030117

    Fylgigögn

  25. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs 30. apríl og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum, sbr. 41. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. apríl:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Minjaverndar hf. í samræmi við 11. gr. samþykkta félagsins, fimmtudaginn 7. maí nk. á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík og hefst kl. 16:00. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi Minjaverndar hf.: Dagskrárliður 1: Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár. Dagskrárliður 2: Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðanda félagsins. Dagskrárliður 3: Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu. Samkvæmt ákvæðum samþykkta er hagnaður eða tap hverju sinni fært á höfuðstól. Dagskrárliður 4: Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðanda fyrir liðið starfsár. Stjórn félagsins leggur til óbreytt stjórnarlaun, 510 þúsund fyrir allt árið, tvöfalt fyrir formann og hlutfallslega fyrir varamenn eftir mætingu. Dagskrárliður 5: Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, ef borist hafa. Engar tillögur hafa borist. Dagskrárliður 6: Kosning stjórnar. Sjá tillögu tilnefningarnefndar borgarráðs. sbr. 17. grein samþykkta. Dagskrárliður 7: Kosning endurskoðanda sbr. 21. grein samþykkta. Stjórn félagsins leggur til að Deloitte verði áfram endurskoðandi. Dagskrárliður 8: Önnur mál . Lagt er til að tillögur 1, 2, 3, 4, 5 og 7 verði samþykktar. Varðandi tillögu 6, þá leggur tilnefningarnefnd borgarráðs til að fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Minjaverndar hf. verði óbreyttir á þann hátt að Guðbrandur Benediktsson verði áfram aðalmaður og Helena Rós Sigmarsdóttir áfram varamaður. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Minjaverndar hf. sem haldinn verður 7. maí 2026. MSS26030116

    Fylgigögn

  26. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 16. apríl sl. og færð í trúnaðarbók borgarráðs, ásamt fylgiskjölum, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl:

    Boðað hefur verið til aðalfundar í Orkuveitu Reykjavíkur föstudaginn 17. apríl 2026 kl. 13:00 að Bæjarhálsi 1 í samræmi við 5. gr. sameignarsamnings félagsins sem gerður er á grundvelli 5. gr. laga um Orkuveitu Reykjavíkur nr. 136/2013. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi OR: 3. Ákvörðun um arðgreiðslur til eigenda OR og um aðra meðferð hagnaðar eða taps Orkuveitu Reykjavíkur á reikningsárinu. Stjórn Orkuveitunnar samþykkir að gera tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu að fjárhæð 4.500 milljónir króna eða tæplega 1,6% af eigin fé í árslok 2025 og 40% af hagnaði ársins. Felur tillagan einnig í sér að arðgreiðsla að fjárhæð 3.500 milljónir króna er án fyrirvara en útgreiðsla 1.000 milljóna króna er háð hagfelldri niðurstöðu óvissuþátta, sem fjallað er um í greinargerð. Tillagan felur í sér að fjárhagsleg skilyrði eru uppfyllt fyrir og eftir arðgreiðslu samkvæmt fjárhagsspá yfir tímabilið 2025-2027. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið starfsár. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir að leggja til við aðalfund að stjórnarlaun hækki sem nemur verðbólgumarkmiði Seðlabankans, eða 2,5%. Aðrar breytingar verði ekki frá þeirri tillögu sem samþykkt var á aðalfundi 2025. 5. Lýsing á kjöri stjórnar. 6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir að leggja til við aðalfund að Grant Thornton endurskoðunarfyrirtæki verði kosið endurskoðunarfélag Orkuveitu Reykjavíkur árið 2026. Fyrir liggur umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar um tillögu 3. Lagt er til að tillaga nr. 3 verði samþykkt. Arðgreiðsla verði því allt að fjárhæð 4.500 milljónir króna eða tæplega 1,6% af eigin fé í árslok 2025 og 40% af hagnaði ársins. Felur tillagan einnig í sér að arðgreiðsla að fjárhæð 3.500 milljónir króna er án fyrirvara en útgreiðsla 1.000 milljóna króna er háð hagfelldri niðurstöðu óvissuþátta. Lagt er til að tillögur nr. 4 og 6 verði samþykktar. Varðandi tillögu 5 þá leggur tilnefningarnefnd Reykjavíkurborgar til við borgarráð að frestað verði tilnefningum kjörinna fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til framhaldsaðalfundar sem boðað verði til eigi síðar en 15. september nk. sbr. útskrift úr fundargerð. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund OR sem haldinn verður 17. apríl 2026.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030108

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins en lýsa skýrri andstöðu við hugmyndir um þvingaðar arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykjavíkur til eigenda sinna. Slík nálgun getur grafið undan fjárhagslegum stöðugleika og langtímafjárfestingargetu fyrirtækisins á tímum þar sem þörf er á verulegum uppbyggingum í orku og innviðum. Rétt er að hafa í huga að Orkuveitan hefur nýverið tryggt sér umfangsmikið lán frá Norræna fjárfestingarbankanum, sem ætlað er að styðja við stórar fjárfestingar í innviðum og orkuskiptum. Það undirstrikar mikilvægi þess að rekstur og fjármögnun fyrirtækisins byggist á traustum og fyrirsjáanlegum forsendum, en ekki skammtímahagsmunum eigenda.

     

    Fylgigögn

  27. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 16. apríl 2026, og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum, sbr. 41. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Betri samgangna ohf. árið 2026, vegna starfsársins 2025, haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2026, kl. 15:00, í fundarsal A á Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavík. Dagskrá fundarins er í samræmi við 12. gr. samþykkta félagsins. Betri samgöngur ohf. heyra ekki undir almenna eigandastefnu Reykjavíkurborgar þar sem um opinbert hlutafélag er að ræða. Meðfylgjandi eru gögn fundarins sem eru trúnaðarmál fram yfir aðalfundinn.

    Tillagan var samþykkt. MSS26030115

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. maí 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 7. maí 2026 og færð í trúnaðarbók, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. maí, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu um samstarf vegna framtíðarstaðsetningar á húsnæði Listaháskóla Íslands milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Listaháskóla Íslands. Aðilar tilnefna a.m.k. einn fulltrúa til að framfylgja viljayfirlýsingunni. Stefnt skal að því að skipulagslýsing um framtíðarþróun á reitnum við Laugarnesveg liggi fyrir eigi síðar en sex mánuðum eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar. Málið er trúnaðarmál þar til viljayfirlýsing er undirrituð. MSS26040033

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Mikilvægt er að finna Listaháskólanum nýjan samastað í borginni og Framsókn styður þá tillögu. Framsókn varar þó við því að byggðar séu 300 íbúðir á þessum reit á næstu árum þar sem hverfið má ekki við frekari fjölgun barna inn í skólahverfið á meðan ástand skólamannvirkja er svo slæmt sem raun ber vitni.

    Fylgigögn

  29. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17. apríl 2026. MSS26010019

    Fylgigögn

  30. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 18. og 21. maí 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  31. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 16. og 30. apríl, 7., 13., 21. og 28. maí 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 8. maí 2026. MSS26010015

    Fylgigögn

  33. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 15. mál (MSS26010013, MSS26010011, MSS24100050, MSS26050080, MSS26050074, MSS26050072, MSS26050066, MSS26050070, MSS26060067, MSS26010031, MSS26020079, MSS25050113, MSS26050068). MSS26050088

    Fylgigögn

  34. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060068

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:53

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Heiða Björg Hilmisdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 11.6.26 - prentvæn útgáfa