TINNA virkniúrræði 10 ára
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, heimsótti Fjölskyldumiðstöðina í Gerðubergi í dag til að fagna 10 ára afmæli TINNU sem er virkniúrræði ætlað einstæðum foreldrum sem eru utan vinnumarkaðar.
TINNA virkniúrræði er samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Félags- og húsnæðismála-ráðuneytisins. Úrræðið ætlað einstæðum foreldrum sem eru utan vinnumarkaðar og hafa átt í langvarandi félagslegum vanda og markmiðið er að styðja við, efla og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu og hjálpa foreldrum að auka lífsgæði sín og barna sinna. Áhersla er á sjálfsstyrkingu, aukna félagslega færni og almenna virkni og þátttöku í samfélaginu, þar með talið á vinnumarkaði. Þá er ennfremur boðið upp á gagnlega fræðslu, sjálfsstyrkingu, jóga og listmálun.
Hildur Björnsdóttir óskaði starfsmönnum og þátttakendum í TINNU hópnum til hamingju með afmælið. Hún sagði að þau námskeið og sú fræðsla sem boðið sé upp á hafi nýst mjög vel og hjálpað foreldrum að auka lífsgæði sín og barna sinna. Þjónustukannanir meðal þátttakenda sýni það og sanna að TINNA sé verkefni sem mikil ánægja sé með.
TINNA Tekur þátt í Listahátíð
Þátttakendur í TINNU taka í ár þátt í Listahátíð í Reykjavík með myndlistarsýningunni Draumar og veruleiki.
Þátttakendur í TINNU hafa í gegnum árin unnið meðal annars að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur frá árinu 2020. Fyrsta sýning hópsins var haldin árið 2021.
Á morgun laugardaginn 6. júní opnar sýning TINNU-hópsins á Listahátíð í Reykjavík undir yfirskriftinni Draumar og veruleiki. Sýningin er afrakstur TINNU-hópsins þar sem ungar konur hafa unnið að því að tengjast sjálfum sér og öðrum konum í gegnum sköpun myndlistar.
Þær fengu fræðslu, kynntu sér efni og aðferðir, fengu þjálfun í tækni, gerðu æfingar út frá skynjun og samtali, virkjuðu forvitnina og ímyndunaraflið og fundu farveg fyrir persónulega tjáningu. Ekki síst fengu þær tækifæri til að upplifa listsköpun sem heilandi ferli.
Sýningin opnar á morgun laugardaginn 6. júní kl. 14.00.
Öll velkomin.