Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur

Sundhöllin.

Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur hófust fyrr í sumar. Framkvæmdirnar hafa reynst mun umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.

Á meðan á framkvæmdum stendur hafa karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúma samtals um 60 gesti og því þarf að miða við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan þessar ráðstafanir eru í gildi.

Þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst þarf því tímabundið að breyta opnunartíma Sundhallarinnar á virkum dögum þar til viðgerðum á kvennaklefa lýkur.

Opnunartíminn verður sem hér segir:

Mánudagar: 06:30–10:00 og 14:00–22:00
Þriðjudagar: 06:30–08:30 og 14:00–22:00
Miðvikudagar: 06:30–22:00 (óbreyttur opnunartími) 
Fimmtudagar: 06:30–08:30 og 15:00–22:00 
Föstudagar: 06:30–10:00 og 15:00–22:00

Lögð er áhersla á að ljúka framkvæmdum við búningsklefa eins fljótt og kostur er og koma starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf. Vonast er til að hægt verði að opna kvennaklefann að nýju á haustmánuðum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda og þökkum gestum fyrir sýnda þolinmæði og skilning.

Við bendum jafnframt á að árskort og aðrar áskriftir gilda í öllum Sundlaugum Reykjavíkur.