Takk fyrir komuna á Menningarnótt
Reykjavíkurborg þakkar gestum fyrir komuna á Menningarnótt 2026. Hátíðin gekk mjög vel fyrir sig þrátt fyrir rigninguna, gestir klæddu sig eftir veðri og nutu fjölbreyttrar dagskrár sem í boði var.
Menningarnótt er stærsti viðburður ársins í Reykjavík þar sem haldið er upp á afmæli borgarinnar. Hátíðahöldin eru fjölbreytt og er mikið lagt upp úr því að flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem um er að ræða tónlist, myndlist, dans eða aðra skemmtun.
Margra mánaða undirbúningur
Mikil vinna liggur að baki svona risastórri hátíð sem þessari og varlega áætlað koma um 150 manns hjá Reykjavíkurborg að skipulagningu og framkvæmd Menningarnætur.
Sú vinna fer fram í góðu samstarfi við fjölmarga aðila og strax í janúar hefjast undirbúningsfundir og samtöl. Meðal þeirra sem koma að þeirri vinnu er lögregla og slökkviliðið, Strætó, rafskútuleigur, fulltrúar ferðaþjónustunnar, rekstraraðila í borginni og fleiri aðilar.
Grannt fylgst með öryggi
Við svona stórar hátíðir er ávallt fylgst vel með öryggi gesta og að allt fari vel fram. Viðvera lögreglu og starfsfólks Reykjavíkurborgar og nágrannasveitarfélaganna var mjög áberandi á hátíðarsvæðinu og stuðlaði að góðri stemningu og auknu öryggi.
Fjórir gönguhópar voru við störf á Menningarnótt, hver þeirra skipaður lögreglumönnum, starfsmönnum miðstöðva og félagsmiðstöðva. Hóparnir hófu störf kl. 15:00 og voru að störfum fram á nótt. Til viðbótar voru tveir hópar skipaðir samfélagslögreglu og ásamt starfsmönnum félagsmiðstöðva og miðstöðva. Þar að auki voru Flotinn, félagsmiðstöðvar borgarinnar og félagsmiðstöðvar nágrannasveitarfélaga með níu gönguteymi sem fóru um hátíðarsvæðið börnum og unglingum til stuðnings.
Nokkuð bar á ölvun meðal ungmenna í miðborginni og starfrækt var athvarf í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar sem tók á móti börnum og unglingum sem þurftu á aðstoð eða aðhlynningu að halda. Starfsmenn miðstöðva voru starfandi í athvarfinu ásamt lögreglumönnum og starfsmönnum félagsmiðstöðva. Engin alvarleg ofbeldismál komu upp og lítið var um slagsmál eða önnur sambærilega atvik.
Hátíðinni lauk með flugeldasýningu og að því loknu flutti strætó gesti heim og gekk rýming miðborgarinnar mjög vel.
Gestir Menningarnætur settu svip sinn á borgina og nutu þess sem í boði var.
Takk fyrir komuna, við sjáumst að ári!