Samverustundir sem hafa góð og verndandi áhrif á börn

Sex manneskjur að hjóla í röð á hjólastíg í skógi.

Sumarið er framundan með öllum sínum ævintýrum. Samvera með fjölskyldunni er einn af þeim þáttum sem eru verndandi í lífi barna og ungmenna. Verndandi þættir er þeir sem draga úr áhættuhegðun og styrkir börn í að takast á við áskoranir í lífinu.

Reykjavíkurborg stendur fyrir forvarnaverkefninu Verum klár þar sem áhersla er lögð á jákvæð skilaboð til ungs fólks og aðstandenda þeirra um samveru og heilbrigðan lífsstíl.  

Verndandi þættir í lífi barna:

  • Virkar samverustundir með fjölskyldunni
  • Foreldrar þekki vini barna sinna og foreldra þeirra
  • Börnin taki þátt í skipulögðu frístundastarfi
  • Foreldrar fylgist með hvað þau eru að gera, hvar þau eru og með hverjum
  • Eiga samtal um virðingu, heilbrigð samskipti, samþykki og mörk
  • Ræða um samfélagsmiðla og ábyrga skjánotkun

Foreldrar geta stuðlað að öryggi barna sinna með því að:

  • Vera góðar fyrirmyndir
  • Setja skýr mörk og ræða hvenær og hvernig þau koma heim til sín á kvöldin
  • Leyfa ekki eftirlitslaus partí og virða útivistartíma
  • Taka virkna þátt í foreldrasamstarfi
  • Virða lög um aldurstakmörk varðandi áfengi, vímuefni og nikotínnotkun

Á vefsíðu Verum klár má finna fjölda góðra hugmynda um samverustundir fjölskyldunnar. Þar er einnig að finna hlekki á margvíslegt efni sem getur nýst fjölskyldum sem vilja gera skemmtilega hluti saman í sumar.