ICEWATER verkefnið kynnt á ársfundi
Ársfundur LIFE á Íslandi fór fram í Norræna húsinu í síðustu viku þar sem íslensk verkefni LIFE voru kynnt.
Eitt verkefnanna er ICEWATER sem er stærsta íslenska verkefnið sem hlotið hefur styrk Evrópusambandsins. Verkefninu er ætlað að styrkja þekkingu og vöktun í vatnamálum hér á landi og taka 22 innlendir aðilar, sveitarfélög og stofnanir þátt. Reykjavíkurborg tekur þátt með því að bæta vatnsgæði í Vatnsmýrinni og Tjörninni og innleiða blágrænar lausnir.
Vatnsmýrin breyst mikið
Á ársfundinum kynnti Þórólfur Jónsson, deildarstjóri Reykjavíkurborg, stöðu verkefna sem tengjast Tjörninni og Vatnsmýrinni. Farið var yfir hvernig Vatnsmýrin hefur breyst á síðustu áratugum og hvernig unnið hefur verið að endurheimt votlendis og vistkerfa á svæðinu.
Fram kom að Tjörnin væri skilgreind í slæmu efnafræðilegu ástandi og að Reykjavíkurborg þurfi samkvæmt vatnaáætlun 2022–2027 að efla vöktun og mótvægisaðgerðir. Fyrr í sumar fóru fram sýnatökur til að greina uppruna mengunar og meta hvaða aðgerðir skili mestum árangri.
Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Veitum, fjallaði um þátttöku Veitna í verkefninu og áherslu á blágrænar lausnir í Vatnsmýri og við Tjörnina. Þar er meðal annars unnið með náttúrulegar lausnir til að hreinsa regnvatn áður en það berst í Tjörnina, draga úr mengunarálagi og bæta stýringu ofanvatns í þéttbýli.
Meira um Icewater verkefnið