Góðgerðarhlaup Brúarskóla styður við uppbyggingu Bryndísarhlíðar

Styrktarhlaup Brúarskóla

Í morgun fór fram sérstakt góðgerðarhlaup á vegum Brúarskóla þar sem nemendur og starfsfólk sameinuðust í hlýlegu framtaki undir yfirskriftinni Riddarar kærleikans.

Styrktarhlaup Brúarskóla

Hlupu samtals 226 kílómetra

Markmið hlaupsins var að ná samanlagt 200 kílómetrum og vekja athygli á mikilvægu málefni og náðust 226 kílómetrar í hús. Hlaupið var haldið til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og uppbyggingu Bryndísarhlíðar, sem verður áfalla- og ofbeldismiðstöð fyrir börn og ungmenni. Samtals hafa safnast 435 þúsund krónur sem er metsöfnun en rétt er að benda áhugasömum á að enn er hægt að leggja málefninu lið.

Kennitala: 5602516-1060
Reikningsnúmer: 515-14-010433

Vildu sýna samstöðu og minna á mikilvægi kærleika

Verkefnið hefur það að markmiði að efla öryggi, velferð og þjónustu fyrir börn sem hafa orðið fyrir áföllum eða ofbeldi. Með þátttöku sinni vildu nemendur og starfsfólk leggja sitt af mörkum, sýna samstöðu og minna á mikilvægi kærleika og samkenndar.

Dagurinn einkenndist af gleði, jákvæðni og sterkri samheldni þar sem þátttakendur hvöttu hvert annað áfram. Einnig voru gestir velkomnir til að fylgjast með og hvetja hlauparana, sem jók enn á stemninguna.

Góðgerðarhlaupið er dæmi um hvernig skólasamfélagið getur komið saman og haft raunveruleg áhrif – bæði með því að styrkja mikilvægt málefni og rækta gildi eins og samkennd, ábyrgð og samstöðu.

Styrktarhlaup Brúarskóla