Vínlandsleið (Laxalón-Þúsöld) - Stígagerð
Verkið felst í gerð nýs hjólastígs meðfram Vínlandsleið frá Laxalóni að Þúsöld.
Framkvæmdatími: Ágúst 2026 - Júní 2027
Hvað verður gert?
Verkið felst í gerð nýs malbikaðs hjólastígs meðfram Vínlandsleið í Grafarholti frá Laxalóni að Þúsöld. Einnig verður gerð ný stígtenging við Guðríðarstíg.
Framkvæmdir fela í sér eftirfarandi verkliði:
- Jarðvinnu og jarðvegsfyllingu
- Malbikun
- Steypun á stoðvegg við hús Veitna
- Niðursetningu fallvarna við stíga
- Niðursetningu ljósastaura
- Uppsetningu umferðarmerkja og yfirborðsmerkinga
- Þökulagningu og sáningu
- Fullnaðarfrágang
Hvernig gengur?
Ágúst 2026
Tilboð í verkið voru opnuð 29. júlí sl. og skiluðu 14 bjóðendur inn tilboðum. Lægstbjóðandi var Jarðval sf. Verkeftirlit verður á herðum Hnit Artelia.
Reikna má með að startfundur í verkinu verði haldinn í seinni hluta ágúst og í framhaldi af því geti framkvæmdir hafist. Áætluð framkvæmdalok eru 1. júní 2027.
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 17.08.2026