Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) - Gatnagerð og lagnir
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Hvað verður gert?
Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Ekki er reiknað með að fleygun klappar verði umfangsmikil. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt allan verktímann.
Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Tryggvagötu og Hafnarstræti. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir.
Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og setbekkjum.
Hvernig gengur?
Júní 2026
Framkvæmdir eru hafnar.
Búið er að reisa girðingar, setja upp aðstöðusvæði og fjarlægja malbik af götunni
Maí 2026
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir seinnihluta maí með undirbúningi og merkingum á verkstað.
Framkvæmdir eru hafnar
Apríl 2026
Startfundur var haldinn þann 28. apríl og verktaki stefnir að því að hefja vinnu eftir miðjan maí