Laugalækjarskóli - viðhaldsframkvæmdir og endurgerð

Unnið er að margvíslegum viðhalds- og mótvægisaðgerðum við Laugalækjarskóla. Auk þess er áætlað að ráðast í umfangsmikla endurnýjun á skólanum á næstu árum.
2022 -
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Lauglækjarskóli

Hvað verður gert?

Unnið er að margvíslegum viðhaldsverkefnum í Laugalækjarskóla sem flest lúta að því að bæta innivist í skólanum. Unnið verður jafnt og þétt eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni. Viðhald, endurnýjun og mótvægisaðgerðir hafa hafa staðið yfir í skólanum síðustu ár og verður þeim haldið áfram til að tryggja að kennsla geti haldið áfram við skólann þar til farið verður í heildarendurbætur.

Svo skapa megi framkvæmdum við heildarendurgerð skólans svigrúm verður hluti starfsemi skólans fluttur í Skólaþorpið í Laugardal

Eftirfarandi verkþættir eru framundan við heildarendurgerð skólans:

  • Endurnýjun glugga
  • Uppsetning loftræsikerfa
  • Múrendurnýjanir
  • Endurnýjun vatns- og raflagna
  • Endurnýjun gólfefna
  • Lagður verður metnaður í bætta hljóð- og ljósvist
  • Kennslustofur verða aðlagaðar að nútíma kennsluháttum

Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu á þeim verkþáttum sem framundan eru.

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Undanfarið hefur verið unnið að endurnýjun á skrifstofugangi. Búið er að hreinsa svæðin að innan og endurnýja í þeim glugga. Gluggarnir hafa í kjölfarið verið þrýstiprófaðir. Enduruppbygging á rýmunum er hafin og er áætlað að klára það sem fyrst.

Laugalækjarskóli
Afskermingar við vinnusvæði á stjórnendagangi

Einnig hefur verið unnið í textílstofu við gluggaskipti, lagningu gólfhita, endurnýjun kerfislofta auk annars. Það verkefni klárast innan skamms.

Laugalækjarskóli
Rými hreinsað að innan, ílögn brotin upp frá útvegg og skapaður undirþrýstingur

Gluggaútskiptum á norðurhúsi er lokið - gluggar voru teknir úr og ísetning þeirra endurgerð. Í kjölfarið voru allir gluggar þrýstiprófaðir. Verið er að ljúka við frágang og stefnt að því að hafa stofurnar tilbúnar fyrir skólasetningu. 

Janúar 2026

Undanfarið hafa farið fram viðgerðir á tröppum og þaksvölum milli nýbyggingar og suðurhúss. Unnið hefur verið að gluggaútskiptum samhliða viðgerðum og endurgerðum á nokkrum kennslustofum, aðstöðu félagsmiðstöðvar, þvottahúsi, vinnustofu- og kaffistofu kennara.

Undirbúningur og þarfagreining vegna endurgerðar á elstu hlutum skólans er hafin og er áætlað að ljúka því á miðju ári.

Maí 2025

Hafist handa við lekaviðgerðir á þaksvölum milli nýbyggingar og suðurhúss.

Einnig hefjast fljótlega mótvægisaðgerðir í tveimur rýmum í hálfniðurgröfnum kjallara, aðstöðu félagsmiðstöðvar og í þremur skrifstofurýmum.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Verkeftirlit með viðhalds- og mótvægisaðgerðum

Verkvist

Ráðgjöf

Ari Oddsson ehf

Verktaki við viðhalds- og mótvægisaðgerðir

Nordic office of architecture

Þarfagreining vegna heildarendurgerðar
Síðast uppfært 12.08.2026