Hlemmur - 2026
Framkvæmdir við norðursvæði Hlemms og Borgarlínu um Hlemm eru í undirbúningi stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir árslok 2027. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu.
Áætlaður framkvæmdatími: Apríl 2026 til ársloka 2027
Næsti áfangi snýr að endurgerð Hlemmtorgs og Borgarlínu um Hlemm, verkið felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu.
Hvað verður gert?
- Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð.
- Götukafli á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu verður endurgerður.
- Gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og gerð torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll.
- Gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu tveggja stoppistöðva Borgarlínu á svæðinu.
- Endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa.
Hvernig gengur?
Mars 2026
Verkefnið er í undirbúningi
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 09.06.2026