Foreldrasamstarf í skóla- og frístundastarfi

Markvisst er unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Í hverjum skóla er starfrækt foreldrafélag, foreldraráð eða skólaráð.

 

Skólaráð og foreldrafélög

Samkvæmt lögum skal vera foreldraráð við hvern leikskóla. Í því sitja að lágmarki þrír foreldrar. Kosning skal fara fram í september ár hvert og er kosið til eins árs í senn.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskólans, fylgjast með framkvæmd skólanámskrár, starfsáætlunar og öðru sem snertir starfsemi leikskólans. Ráðið hefur umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfi.  

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Einnig skal við grunnskólann starfa  foreldrafélag sem styður við skólastarfið, stuðlar að velferð nemenda og traustum tengslum milli heimila og skóla.

Samtök foreldra 

Foreldrar hafa stofnað foreldrafélög í öllum grunnskólum borgarinnar. Samtök foreldra í landinu sem nefnast Heimili og skóli. Á skóla- og frístundasviði starfar verkefnastjóri foreldrasamstarfs sem liðsinnir og er í samstarfi við foreldrafélög í leik- og grunnskólum Reykjavíkur.