Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 316

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 21. ágúst, var haldinn 316. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst kl. 9.01.
Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir staðgengill sviðsstjóra, Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ingunn Ásta Sigmundsdóttir og Soffía Pálsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 18. ágúst 2026, ásamt umsögn skrifstofu borgarhönnunar og samgangna, dags. 22. júní 2026 og skólaráðs Hlíðaskóla, dags. 14. ágúst 2026:

    Lagt er til að fella niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla frá og með upphafi skólaársins 2026-2027.

    Greinargerð fylgir.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðsluna. SFS25010151

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn styður tillögu sviðsstjóra á grundvelli faglegs mats um öryggi gönguleiða og gildandi viðmiða um vegalengdir til skóla. Fyrir liggur að leiðirnar uppfylla þau skilyrði sem gilda um reglubundinn skólaakstur og að gripið verði til frekari öryggisráðstafana og umbóta á vetrarþjónustu á svæðinu. Mikilvægt er að ákvörðunin og framkvæmd hennar verði vel kynnt foreldrum og skólasamfélaginu og að fylgst verði náið með áhrifum breytingarinnar á ferðir barna til og frá skóla. Meirihlutinn leggur áherslu á að fylgst verði með framgangi málsins og þeim áskorunum sem kunna að koma fram eftir innleiðingu breytingarinnar og þeim verði mætt eins og hægt er.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Boðað var til aukafundar í skóla- og frístundaráði til þess að afgreiða eitt mál sem snýst um að leggja niður skólaakstur fyrir börn úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla. Fyrir börn og sérstaklega þau yngstu er um talsverða vegalengd að ræða, allt að 1,4 kílómetra, sem áætlað er að taki börn sem búa lengst frá skólanum hátt í hálftíma að labba. Þó að vegalengdin sé innan fjarlægðarviðmiða sem gilda um reglubundinn skólaakstur, þá er vert að taka fram að fyrirhugaðar framkvæmdir við uppbyggingu á Veðurstofuhæð munu hafa áhrif á umferðarflæði sem og umferðaröryggi á svæðinu. Það liggur fyrir að um 15 börn myndu nýta skólaaksturinn á skólaárinu sem hefst eftir 3 daga. Því er um mjög skamman fyrirvara að ræða. Samkvæmt viðmiðum um reglubundinn skólaakstur sem kveðið er á um í reglum um strætókort til nemenda í grunnskólum Reykjavíkurborgar á ákvörðun um að fella niður skólaakstur að vera tekin að meginreglu fyrir 1. júlí. Auk þess er kveðið á um að samþykki fyrir reglubundnum skólaakstri er ótímabundið og gildir nema forsendur breytist en við sjáum ekki að forsendur hafi breyst í þessu tilviki með tilliti til öryggis barna. Telja fulltrúarnir því mikilvægt að skólaaksturinn sé til staðar.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 9:24

Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir

Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir Stein Olav Romslo

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 21. ágúst 2026