Forsætisnefnd - Fundur nr. 378

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 12. júní, var haldinn 378. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:06. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Ragnhildur Alda María Villhjálmsdóttir, Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stein Olav Romslo. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þann 2. júní 2026, hafi Björg Magnúsdóttir verið kjörin forseti borgarstjórnar til eins árs og að Brynjar Níelsson, Stein Olav Romslo, Einar Þorsteinsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir hafi verið kjörin 1., 2., 3. og 4. varaforsetar borgarstjórnar til eins árs. MSS26060004

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þann 2. júní 2026 hafi verið samþykkt að Róbert Ragnarsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Skúli Helgason og Líf Magneudóttir taki sæti sem varamenn í forsætisnefnd. Jafnframt er tilkynnt að Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir verði áheyrnarfulltrúi Miðflokksins í forsætisnefnd og Lárus Blöndal Sigurðsson til vara og Silja Sóley Birgisdóttir verði áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og Sigrún E Unnsteinsdóttir til vara. MSS26060006

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þann 2. júní 2026 hafi Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir verið kosnar skrifarar borgarstjórnar og Albert Guðmundsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir til vara. MSS26060004

    Fylgigögn

  4. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 16. júní 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um símafrí í grunnskólum
    b)Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um skipan starfshóps til að meta áhrif ESB-aðildar á hagsmuni Reykjavíkurborgar
    c)Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík
    d)Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um að mannréttindaráð verði lagt niður
    e)Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um uppfærslu á mötuneytum í skólum borgarinnar svo elda megi á staðnum
    f)Afnotasamningur um borgarland í Gufunesi – uppsögn, sbr. 7. lið fundargerðar borgarráðs frá 11. júní MSS26060088

  5. Lagt fram bréf borgarritara og sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 10. júní 2026, varðandi ráðningarsamning borgarstjóra, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26060089

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, varðandi sumarleyfi borgarstjórnar.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26060082

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. júní 2026, varðandi fundadagatal borgarstjórnar og forsætisnefndar.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26060066

    Fylgigögn

  8. Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd samþykki leiðbeinandi tíma reglulegra funda borgarstjórnar, borgarráðs og fagráða fyrir yfirstandandi kjörtímabil.
    Samþykkt MSS26060066

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, varðandi siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað MSS26060081

  11. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, varðandi fjárframlög til stjórnmálasamtaka seinni hluta árs 2026, ásamt fylgiskjölum. MSS26060073

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, varðandi endurskoðaðar verklagsreglur um fundargerðir nefnda og ráða Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. MSS26060080

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, þar sem tilkynnt er að Líf Magneudóttir fari með formennsku í borgarstjórnarflokki Vinstrisins. MSS26060077

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, þar sem tilkynnt er að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir fari með formennsku í borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar. MSS26060077

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, þar sem tilkynnt er að Páll Edwald fari með formennsku í borgarstjórnarflokki Miðflokksins. MSS26060077

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 2. júní 2026 á tillögu um stofnun leikskóla- og daggæsluráðs.
    Vísað til skrifstofu borgarstjórnar. MSS26060009

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 2. júní 2026 á tillögu um breytingu á heiti og verkefnum menningar- og íþróttaráðs.
    Vísað til skrifstofu borgarstjórnar MSS26060010

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 2. júní 2026 á tillögu um stofnun öldungaráðs.
    Vísað til skrifstofu borgarstjórnar MSS26060012

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 2. júní 2026 á tillögu um stofnun menningarráðs.
    Vísað til skrifstofu borgarstjórnar MSS26060011

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 9. júní 2026 á tillögu um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar vegna 63. gr. samþykktarinnar, ásamt fylgiskjölum. MSS26060008

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Með umræddum samþykktarbreytingum er opnað á aðkomu fulltrúa neðar á lista, sem ekki hafa hlotið kjör sem borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar, sem aðalfulltrúa í fagráðum. Slíkt getur haft jákvæð og neikvæð áhrif og sérstaklega á umræðu í borgarstjórn ef formenn fagráða og fulltrúar þeirra sitja ekki í borgarstjórn.

    Fylgigögn

  21. Áheyrnarfulltrúi Sóslíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Sósíalistaflokkur Íslands leggur til að siðareglur kjörinna fulltrúa verði endurskoðaðar til að skapa skýrari siðferðislegan ramma í kringum störf kjörinna fulltrúa.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað. MSS26060081

Fundi slitið kl. 11:47

Björg Magnúsdóttir Einar Þorsteinsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Stein Olav Romslo

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 12.06.2026 - Prentvæn útgáfa