Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 9. júní, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:02. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Björg Magnúsdóttir, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Bjarni Fritzson, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Brynjar Níelsson, Einar Þorsteinsson, Guðný María Jóhannsdóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, Líf Magneudóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Skúli Helgason, Stein Olav Romslo, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Fram fer síðari umræða um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar vegna 63. gr. samþykktarinnar.
- Kl. 12:05 tekur Heiða Björg Hilmisdóttir sæti og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir víkur af fundinum.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að formenn þeirra ráða sem talin eru upp í B-lið skulu koma úr hópi aðalmanna í borgarstjórn.
Breytingartillagan er felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarfulltrúar Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar vegna 63. gr. samþykktarinnar er samþykkt.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26060008Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar DCB leggja áherslu á aðhald í rekstri borgarinnar og munu ráðast í aðgerðir til þess að ná markmiðum um sjálfbæran rekstur. Meirihlutinn ræðst hér í breytingar á ráðum borgarinnar til þess að setja skýran fókus á þau málefni sem borgarbúar kalla eftir. Meirihlutinn bendir á að við niðurlagningu stafræns ráðs sparast tvö stöðugildi sem jafngildir tæplega 40 milljóna sparnaði.
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að kostnaðarmat vegna breytinga á fagráðum varpi ekki skýru ljósi á raunverulegan kostnað tillögunnar. Í matinu er gert ráð fyrir verulegri hagræðingu sem byggir á forsendum sem eru hvorki hluti af fyrirliggjandi tillögu né hafa fengið sjálfstæða umfjöllun í borgarstjórn, þ.e. breytingum á kjörum fyrstu varaborgarfulltrúa. Fulltrúar Samfylkingarinnar benda jafnframt á að kostnaðarmatið byggir á afar þröngum og óvissum forsendum. Ekkert í tillögunum tryggir að skipan í ráð og nefndir verði með þeim hætti sem matið gerir ráð fyrir og því getur raunverulegur kostnaður orðið umtalsvert meiri en kynntar tölur gefa til kynna. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja óásættanlegt að meta kostnað á grundvelli tillögu sem ekki er búið að leggja fram. Mikilvægt er að borgarstjórn og íbúar fái gagnsæjar upplýsingar um fjárhagsleg áhrif breytinganna og að ákvarðanir byggi á skýrum og faglegum forsendum.
Borgarfulltrúar Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Með umræddum samþykktarbreytingum er opnað á aðkomu fulltrúa neðar á lista, sem ekki hafa hlotið kjör sem borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar, sem aðalfulltrúa í fagráðum. Slíkt getur haft jákvæð og neikvæð áhrif og sérstaklega á umræðu í borgarstjórn ef formenn fagráða og fulltrúar þeirra sitja ekki í borgarstjórn. Borgarfulltrúar Vinstrisins telja að eðlilegt hefði verið að ræða þessa veigamiklu breytingu í forsætisnefnd sem fjallar um tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
- Kl. 13:21 víkur Skúli Helgason af fundinum og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir tekur þar sæti.
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka kosningu í umhverfis- og skipulagsráð á dagskrá.
Lagt er til að Ari Edwald taki sæti í umhverfis- og skipulagsráði í stað Páls Edwalds. Einnig er lagt til að Lárus Blöndal Sigurðsson taki sæti varamanns í ráðinu í stað Ara.
Samþykkt. MSS26060015
Fundi slitið kl. 13:26
Björg Magnúsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 09.06.2026 - Prentvæn útgáfa