Um Hildi

Hildur Björnsdóttir er lögfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt. Hún hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur frá árinu 2018, átt sæti í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði, skóla- og frístundaráði, svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, stjórn Orkuveitunnar, Faxaflóahafna og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Hildur er móðir barnanna Björns Helga, Kristínar Sólveigar, Katrínar Ólafar og Hólmfríðar Áslaugar. Hún er gift Jóni Skaftasyni, lögfræðingi. 

Menntun og annað

2013 -: Solicitors Regulatory Authority
2012: - Héraðsdómslögmannsréttindi
2011 -  MA í lögfræði frá Háskóla Íslands
2009 -  BA í lögfræði frá Háskóla Íslands
2009: - BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands
2006 - Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands

​Starfsreynsla

2022 -             Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
2018 -             Borgarfulltrúi í Reykjavík
2018 -             Borgarráð Reykjavíkur
2022 -             Stjórn Faxaflóahafna
2022 -             Stjórn Sambandsins
2022 -             Umhverfis- og skipulagsráð
2022 -             Svæðisskipulagsnefnd hbsv.
2018 - 2022: - Stjórn Orkuveitunnar
2021 - 2022: - Skóla- og frístundaráð
2019 - 2022: - Fjölmenningaráð
2018 - 2021: - Skipulags- og samgönguráð
2017 - 2018: - Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema (formaður)
2016 - 2017: - Pistlahöfundur í Fréttablaðinu
2013 - 2016: - LOGOS Legal Services London
2010 - 2013: - Réttur, lögmannsstofa
2009 - 2010: - Formaður Stúdentaráðs HÍ
2007 - 2009: - Starfsmaður á sambýli 
2005 - 2007: - Sjóvá, tryggingaráðgjöf
2004 - 2006: - Aðhlynning á Hrafnistu