Borgarfulltrúar
Fulltrúar í Borgarstjórn Reykjavíkur eru 23 talsins og eru kosnir til fjögurra ára í senn. Þá eru einnig kosnir 23 varaborgarfulltrúar. Núverandi borgarfulltrúar voru kosnir í borgarstjórn í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru þann 16. maí árið 2026.
Borgarfulltrúar
-
Albert Guðmundsson
-
Ari Edwald
-
Bjarni Fritzson
-
Bjarni Guðjónsson
-
Björg Magnúsdóttir
-
Brynjar Níelsson
-
Einar Þorsteinsson
-
Guðný María Jóhannsdóttir
-
Heiða Björg Hilmisdóttir
-
Hildur Björnsdóttir
-
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
-
Lárus Blöndal Sigurðsson
-
Líf Magneudóttir
-
Pétur Hafliði Marteinsson
-
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
-
Róbert Ragnarsson
-
Rúnar Freyr Gíslason
-
Sanna Magdalena Mörtudóttir
-
Sigrún Ásta Einarsdóttir
-
Silja Sóley Birgisdóttir
-
Skúli Helgason
-
Stein Olav Romslo
-
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Varaborgarfulltrúar
- Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson
-
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
-
Birkir Ingibjartsson
-
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
-
Björn Gíslason
-
Daníel Hjörvar Guðmundsson
- Elínborg Ásdís Árnadóttir
-
Friðjón R. Friðjónsson
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Helga Margrét Marzellíusardóttir
-
Helgi Áss Grétarsson
-
Hlédís Maren Guðmundsdóttir
-
Isabel Alejandra Diaz
-
Magnea Gná Jóhannsdóttir
-
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
- Már Másson
-
Páll Edwald
-
Regína Ásvaldsdóttir
-
Safa Jemai
-
Sara Björg Sigurðardóttir
-
Sigrún E Unnsteinsdóttir
-
Stefán Pálsson
-
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Hlutverk borgarfulltrúa
Borgarfulltrúarnir 23 eiga allir sæti í borgarstjórn, sem er æðsta ákvörðunarvald í stjórn Reykjavíkurborgar. Þá eru borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar kosnir í ýmis ráð og nefndir á vegum borgarinnar, svo sem borgarráð, fagráð, íbúaráð, stjórnir fyrirtækja og samtaka á vegum Reykjavíkurborgar.
Stjórnmálaflokkar í borgarstjórn
Sjö stjórnmálaflokkar eiga fulltrúa í borgarstjórn.
- Framsókn
- Miðflokkurinn
- Samfylkingin
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Sósíalistaflokkur Íslands
- Viðreisn
- Vinstrið
Réttindi og skyldur borgarfulltrúa
Borgarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum borgarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli. Til lögmætra forfalla teljast veikindi, brýnar, ófyrirséðar og óviðráðanlegar aðstæður og önnur brýnni skyldustörf. Hverjum borgarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem borgarstjórn felur honum og varða verkefni Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
Borgarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Borgarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá borgarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni Reykjavíkurborgar eða verkefni hennar. Mál sem ekki er tilgreint í boðaðri dagskrá borgarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis ⅔ hluta fundarmanna. Borgarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum borgarstjórnar, en það er nánar útskýrt í fundarsköpum borgarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum borgarstjórnar.
Siðareglur borgarfulltrúa
Borgarfulltrúum fer að fara eftir þeim siðareglum sem borgarstjórn hefur sett sér. Núverandi siðareglur voru samþykktar í borgarstjórn þann 18. júní 2019:
- Við vinnum fyrir fólkið í borginni og pössum upp á Reykjavík sem heimili komandi kynslóða.
- Við erum heiðarleg, ábyrg, og sýnum gott fordæmi í okkar störfum.
- Við kynnum okkur málin og mætum undirbúin til starfa.
- Við segjum satt en gætum trúnaðar þegar trúnaður þarf að ríkja.
- Við veitum almenningi og fjölmiðlum nauðsynlegar upplýsingar.
- Við hugum að því að það sé gott að vinna hjá Reykjavíkurborg.
- Við förum vel með fjármuni borgarinnar og eignir hennar.
- Við virðum margbreytileikann og vinnum gegn hvers kyns fordómum.
- Við sýnum kurteisi, tillitsemi og virðum einkalíf annarra.
- Við biðjumst afsökunar á mistökum og hlýðum á afsökunarbeiðnir.
- Við erum meðvituð um að við höfum ólíkar skoðanir.
Hagsmunaskráning
Borgarstjórn samþykkti nýjar reglur um skráningu fjárhagslegra hagsmuna borgarfulltrúa og trúnaðarstörf utan borgarstjórnar 3. mars 2020. Skráning samkvæmt nýjum reglum er valkvæð og er skráning þeirra sem það kjósa birt 1. október 2020.
Kosningar til borgarstjórnar
Á fjögurra ára fresti er kosið til sveitarstjórna á Íslandi. Nýkjörin borgarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag og jafnskjótt lætur fráfarandi borgarstjórn af völdum. Á fyrsta fundi borgarstjórnar er kosið í ráð og nefndir. Núverandi kjörtímabil rennur út í maí árið 2030.
Laun og kostnaðargreiðslur borgarfulltrúa
Um laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg fer samkvæmt ákvæðum samþykktar um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa.